Feb 2, 2026
Breyting á hollvinasamningum og gistiviðauki framlengdur
Fyrstu hollvinasamningar Þórkötlu voru undirritaðir í desember 2024. Frá upphafi hefur verkefnið gengið vel og hefur hollvinum Þórkötlu fjölgað jafnt og þétt frá undirritun fyrstu samninga.

Hollvinasamningar voru fyrst um sinn tímabundnir til 12 mánaða en nú hefur félagið tekið þá ákvörðun að hollvinasamningar verði ótímabundnir með eins mánaða uppsagnarfresti.
Til að einfalda alla umsýslu hefur Þórkatla ákveðið að framlengja eldri samninga einhliða og líta á þá sem ótímabundna samninga með eins mánaða uppsagnarfresti.
Ákvæði 3.1 hollvinasamnings var eftirfarandi:
Samningur þessi tekur gildi við undirritun hans („undirritunardagur“) og er tímabundinn til 12 mánaða. Þórkötlu er þó heimilt að rifta samningnum gerist hollvinur uppvís að verulegri vanefnd á samningnum. Hollvini er heimilt að segja samningnum upp með eins mánaðar uppsagnarfresti. Tilkynning um uppsögn á samningnum tekur gildi frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir að uppsögn berst Þórkötlu með sannanlegum hætti.
Ákvæði 3.1 hollvinasamnings hljóðar nú svo:
Samningur þessi tekur gildi við undirritun hans („undirritunardagur“) og er ótímabundinn með eins mánaða uppsagnarfresti fyrir báða aðila. Tilkynning um uppsögn á samningnum tekur gildi frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir að uppsögn berst til aðila samningsins með sannanlegum hætti. Þórkötlu er þó heimilt að rifta samningnum gerist hollvinur uppvís að verulegri vanefnd á samningnum og tekur þá riftun samningsins þegar gildi.
Þeir hollvinir sem hafa í gildi hollvinasamning við félagið en vilja ekki halda áfram samningnum eftir að gildistími hans rennur út eru beðnir að tilkynna félaginu það með tölvupósti á hollvinir@thorkatla.is
Gistiviðauki við hollvinasamning
Gistiviðauki við hollvinasamning var kynntur sem tilraunaverkefni í maí 2025. Verkefnið hefur gengið vel og aukið viðveru Grindvíkinga í bænum frá upphafi verkefnisins.
Gistiviðauki var kynntur sem viðauki við hollvinasamning um gistingu, gildur til 31. mars 2026. Félagið hefur með sama hætti ákveðið að framlengja heimild hollvina með gistisamning til að gista í eignum félagsins til 31. ágúst 2026.
Þeir hollvinir sem hafa í gildi gistisamning við félagið en vilja ekki halda áfram samningnum eftir að gildistími hans rennur út eru beðnir að tilkynna félaginu það í tölvupósti á hollvinir@thorkatla.is

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur
Skilmálar og stefnur
Hafa samband
546-2100
2024 Fasteignafélagið Þórkatla
– Öll réttindi áskilin