Kaup á húsnæði

Endurkaupaáætlun Þórkötlu

Fasteignafélagið Þórkatla býður nú fyrrum eigendum fasteigna í Grindavík upp á endurkaup sinna fyrri eigna. Áætlunin er sett fram sem valkostur fyrir þá íbúa sem tilbúnir eru að flytja aftur til Grindavíkur og er í raun mikilvæg forsenda fyrir enduruppbyggingu Grindavíkur. 

Við gerð áætlunarinnar var lögð áhersla á gott samtal við fulltrúa íbúa um lykilþætti og útfærslu áætlunarinnar.

Helstu atriði endurkaupaáætlunar Þórkötlu eru:

  • Söluverð er það sama og félagið keypti eignina á (sama krónutala)

  • Kaupandi greiðir 5% af kaupverði sem kaupsamningsgreiðslu

  • Mánaðarleg kaupleigugreiðsla fer að hluta til lækkunar á eftirstöðvum

  • Fjárhagslegir hvatar til endurkaupa skila sér á tilteknu tímabili

  • Áhætta kaupenda er afmörkuð með þriggja ára heimild til að skila eigninni á gildistíma endurkaupasamnings 

  • Gildstími endurkaupasamninga er til 1. september 2030.    

Samkvæmt endurkaupaáætlun Þórkötlu stendur öllum þeim sem seldu félaginu fasteign til boða að kaupa sína fyrri eign til baka.  Boðið er óháð því hvort viðkomandi hafi óskað eftir forgangsrétti eða ekki. Hver aðili eða hjón geta þó einungis keypt eina eign skv. endurkaupaáætlun Þórkötlu.

Nánari upplýsingar um endurkaupaáætlunina er að finna inn á mínum síðum á vef Þórkötlu.

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur

2024 Fasteignafélagið Þórkatla

– Öll réttindi áskilin