Viðhald fasteigna í eigu Þórkötlu

Fasteignafélagið Þórkatla sinnir reglubundinni umhirðu og viðhaldi á húsum í eigu félagsins í Grindavík. Hér má sjá gróft yfirlit yfir þá vinnu sem fer fram á vegum félagsins.
Mikilvægt er að hafa í huga að stór hluti af vinnu Þórkötlu innan eigna félagsins í Grindavík fer fram án þess að nokkuð beri á því utan frá.
Þá eru húsin mörg hver ónotuð og þurfa reglulega og örugga umhirðu til að fyrirbyggja frekari skemmdir — sérstaklega vegna raka, frosts og leka.

Almenn umhirða og eftirlit

Almenn umhirða og eftirlit með húsum Þórkötlu í Grindavík skipar stóran sess í daglegum verkefnum Þórkötlu.
Reglubundið eftirlit með það að markmiði að heimsækja hvert hús einu sinni í mánuði.
Vatni hellt í niðurföll, síur í hitakerfum losaðar og húsin loftræst við hverja heimsókn.
Fjarvöktunarbúnaður til staðar í stórum hluta húsanna sem fylgist með hita, raka og rafmagni í húsunum og lætur vita við minnstu breytingu.
Sérstök áhersla á eftirlit með húsum þar sem hitakerfi eru opin og frekari líkur á stóru vatnstjóni.
Hitamyndavélar notaðar á veturna. Ekið framhjá öllum húsum til að nema hita. Við minnstu frávik eru lyklar sóttir og húsið heimsótt.
Yfirborðsmygla fjarlægð af fagfólki ef hún finnst.
Stöðugum hita viðhaldið í húsunum eins og kostur er. Í þeim tilgangi setti Þórkatla tvo rafmagnsofna í hvert hús sem öryggisviðbragð ef heitt vatn skyldi fara af húsum að vetri til.
Þakrennum haldið í lagi eins og hægt er.
Sprungum utan á húsum lokað til að varna raka og skemmdum.
Brotnar rúður fjarlægðar og skipt um eins og hægt er.
Þakkantar lagaðir eftir þörfum.
Girðingar, handrið og annað sem brotnar eða skemmist er lagfært.

Hitaveita og hitakerfi

Mikið af vinnu Þórkötlu í Grindavík hefur snúið að hitaveitu og hitakerfum húsa. Hér má finna stutta samantekt af þeirri vinnu.
Endurnýjun hitanema á ofnum.
Skipti á ofnlokum og stillingarbúnaði.
Ofnum sem leka lokað eða þeir fjarlægðir.
Þétting á lögnum sem leka.
Hitakerfi í bílastæðum ýmist blásið út eða frostlögur settur á kerfið.
Skipti á rafhlöðum í gólfhitastýringum.
Endurnýjun stýriloka og viðgerð á tölvum í gólfhitakistum.
Skipti á ónýtum dælum og stífluðum varmaskiptum.
Viðgerð og skipti á lokunum í hitakerfum (AV, AVDA, AVTB).
Brot á gólfi eða veggjum til að laga lagnir sem leka.
Skipti á þenslukerjum (um ¾ af öllum húsum í bænum).
Frostlegi bætt í lokuð hitakerfi.
Auka öryggi sett í rafmagnstöflur til að varna því að hitakerfi slái út.

Fjarvöktun í 560 eignum Þórkötlu

Fasteignafélagið Þórkatla nýtir fjarvöktunarkerfi til að fylgjast með ástandi fasteigna félagsins í Grindavík.
Fjarvöktun er nú þegar virk í 260 eignum og gerir félaginu kleift að fylgjast með hita, raka og rafmagni í rauntíma.
Kerfið sendir félaginu viðvaranir ef hitastig fer yfir eða undir skilgreind mörk, rakastig verður of hátt eða rafmagn fer af.
Þannig getur félagið brugðist hratt og markvisst við frávikum og gripið til viðeigandi aðgerða áður en þau leiða til frekara tjóns.
Fjarvöktunarkerfi Þórkötlu er keypt og þjónustað af Triotech.
Reynslan af fjarvöktun hefur sýnt fram á ótvírætt notagildi hennar og mikilvægi fyrir skilvirka umsjón og viðhald fasteignanna.
Nýverið fjárfesti félagið í 300 fjarvöktunarkerfum til viðbótar og stefnt er að því að þau verði öll komin í notkun fyrir lok árs 2026.
Þar með verður fjarvöktun virk í samtals 560 eignum félagsins.

Hverju er ekki sinnt?

Þórkatla leggur áherslu á að vernda húsin og viðhalda verðmæti þeirra eins og hægt er. Ytra útlit og garðar eru vegna þessa ekki hluti af viðhaldsáætlun félagsins.
Þetta þýðir að:
Húsin eru ekki máluð, hvorki að innan eða utan.
Garðar eru ekki hirtir.
Tréverki (pallar, skjólveggir, gluggar, hurðir o.fl.) er ekki sinnt sérstaklega.

Ástand eigna

Nýverið var eignasafn félagsins yfirfarið og ástand allra eigna metið, að undanskildum þeim eignum sem flokkaðar eru sem altjón.
Eignirnar voru metnar með sérstakri ástandseinkunn og var almennt ástand eigna félagsins metið sem gott.
Um 60% eigna fengu ástandseinkunn á bilinu 7-10.
Einungis 4% eigna fengu einkunn á bilinu 0-2 sem gefur til kynna lakt ástand. Þar á meðal eru eignir með stærra tjón og eignir sem voru í löku ástandi þegar Þórkatla tók við eigninni.
Meðaleinkunn eigna var 6,6 og algengasta einkunn var 8.
Fjöldi eigna eftir ástandi

Almennt ástand hollvinaeigna er mjög gott. Af þeim eignum sem eru með virkan hollvinasamning voru 71% eigna með ástandseinkunn á bilinu 7-10. Við viljum þakka hollvinum fyrir að standa með félaginu og leggja sitt af mörkum við að viðhalda og vernda eignirnar.
Hollvinasamningar eftir ástandi

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur
Skilmálar og stefnur
Hafa samband
546-2100
2024 Fasteignafélagið Þórkatla
– Öll réttindi áskilin