Jun 4, 2026

Breytt fyrirkomulag gistiheimildar fyrir hollvini

Eftir hlé á veitingu gistiviðauka meðan endurskoðun stóð yfir á hollvinasamningum hefur nú verið opnað aftur fyrir umsóknir um gistingu. Gistiheimild verður með óbreyttum hætti og gildir til 31. ágúst 2026 en frá og með 1. september nk. mun gistiheimild takmarkast við ákveðinn fjölda daga.

Fasteignafélagið Þórkatla hóf síðla árs 2024 að bjóða fyrrum eigendum fasteigna í Grindavík aðgengi að eignum sem þeir höfðu selt félaginu með gerð hollvinasamnings. Vorið 2025 hóf félagið að bjóða hollvinum að gera viðauka við samninginn sem heimilaði gistingu í eignunum tímabundið. Heimild til gistingar hefur nú verið framlengd í nokkur skipti, nú síðast til 31. ágúst 2026.

Síðustu vikur hefur Þórkatla unnið að endurskoðun hollvinasamningsins með það að markmiði að skýra nánar heimild hollvina til dvalar í eignum félagsins. Í uppfærðum samningi, sem verður í boði frá og með 1. september 2026, verða áfram skýr ákvæði um bann við fastri búsetu og verður heimild til gistingar í eignum félagsins afmörkuð með skýrari hætti.

Til þess að efla öryggi og yfirsýn við rýmingu eignanna verður sett upp skráningargátt á heimasíðu Þórkötlu þar sem hollvinir skulu merkja við hvaða nætur þeir gista í húsum félagsins. Samhliða mun Þórkatla, í samráði við slökkvilið Grindavíkur, auka öryggis- og eldvarnareftirlit eigna félagsins sem svar við þeim kröfum sem gerðar eru á félagið í tengslum við dvöl hollvina í þeim.

Þórkatla stefnir enn að því að bjóða fyrrum eigendum upp á að kaupa eignir sínar til baka með sérstökum endurkaupasamningi Þórkötlu. Vinna við samninginn og lagaumhverfi hans er enn í vinnslu. Helstu þættir endurkaupasamnings Þórkötlu eru að tryggja forgang Grindvíkinga að fyrri eignum sínum ásamt því að tryggja fjármögnun kaupanna og skilarétt í tiltekinn tíma.

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur

2024 Fasteignafélagið Þórkatla

– Öll réttindi áskilin