Fyrirhuguðum kynningarfundum frestað
Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið að fella niður fyrirhugaða kynningarfundi sem áttu að fara fram þriðjudaginn 17. nóvember og fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi.

Fasteignafélagið Þórkatla kynnti fyrir Grindvíkingum á fundi í Grindavík miðvikudaginn 11. nóvember áætlun um endurkaup á þeim fasteignum sem félagið keypti í kjölfar eldsumbrota í nágrenni bæjarins.
Á fundinum var farið yfir helstu forsendur áætluninnar. Markmið fundarins var meðal annars að fá frekari viðbrögð frá Grindvíkingum og gefa þeim sem ekki höfðu tekið þátt í því samráði sem hefur átt sér stað rými til þess að leggja orð í belg.
Umræður voru góðar og bárust margar athugasemdir við endurkaupaáætlunina. Að þeim sökum hefur Þórkatla ákveðið að fresta frekari kynningarfundum sem fara áttu fram þriðjudaginn 17. nóvember og fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi. Þórkatla mun nú yfirfara þær ábendingar og sjónarmið sem komu fram á á fundinum 11. nóvember og mun skipuleggja frekari fundi þegar því starfi er lokið.
Við þökkum þeim sem mættu á fundinn fyrir þátttökuna og munum upplýsa ykkur frekar um næstu skref.

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur
Skilmálar og stefnur
Hafa samband
546-2100
2024 Fasteignafélagið Þórkatla
– Öll réttindi áskilin