Aug 7, 2026
Gistiheimild hollvina framlengd óbreytt til 31. október
Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið að framlengja fyrirliggjandi gistiviðauka við hollvinasamninga um tvo mánuði eða til 31. október næstkomandi.

Fasteignafélagið Þórkatla hefur ákveðið að framlengja fyrirliggjandi gistiviðauka við hollvinasamninga um tvo mánuði eða til 31. október næstkomandi. Gistiheimildin verður með óbreyttum hætti á því tímabili og án sérstakra takmarkana, annarra en þeirri að föst búseta er áfram óheimil í eignunum.
Endurskoðun á fyrirkomulagi við gerð áhættumats fyrir þéttbýlið í Grindavík miðar vel, en markmið þeirrar vinnu er að styðja við endurreisn Grindavíkur með öryggi íbúa að leiðarljósi. Fasteignafélagið Þórkatla bindur vonir við að með uppfærðu áhættumati skapist svigrúm til að hefja endursölu eigna og þar með traustur grundvöllur fyrir fastri búsetu í Grindavík.
Fyrrum eigendum fasteigna í Grindavík hefur, frá því síðla árs 2024, boðist að gera hollvinasamninga við Þórkötlu um eignirnar og vorið 2025 bættist við heimild til gistingar í eignunum, svokallaður gistiviðauki. Föst búseta í eignunum er hins vegar óheimil samkvæmt samningunum. Tæplega 300 Grindvíkingar eru með virkan hollvinasamning og af þeim eru um 170 með samning með gistiviðauka.
Endurkaup forsenda fastrar búsetu
Þórkatla hefur, líkt og áður hefur komið fram, gert endurkaupaáætlun þar sem tekið er á því með hvaða hætti Grindvíkingum verður boðið að kaupa eignir sínar til baka. Vinna við lagaumhverfi áætlunarinnar stendur yfir og verður áætlunin kynnt í kjölfarið en endurkaup eru forsenda fyrir fastri búsetu í fasteignunum að nýju.

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur
Skilmálar og stefnur
Hafa samband
546-2100
2024 Fasteignafélagið Þórkatla
– Öll réttindi áskilin