Gerast hollvinur
Sækja um Hollvinasamning.
Þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík geta gert samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning.
Með því að gera hollvinasamning ákveður “hollvinur” að fá aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í samningnum en meðal þess er heimild til að geyma lausafé í eigninni og sinna viðhaldi og umhirðu eftir hentugleika. Þannig geta seljendur viðhaldið tengslum sínum við húsið og í raun “gætt þess”.
Á meðan samningurinn er í gildi er gengið út frá því að hollvinur heimsæki eignina og sinnir Þórkatla því ekki hefðbundnu eftirliti á meðan. Ef hollvinur sér fram á að hann muni ekki heimsækja eignina í lengri tíma, þ.e. tímabil sem varir lengur en 12 vikur, óskar Þórkatla eftir upplýsingum frá hollvini þess efnis svo hægt sé að huga að eftirliti með öðrum hætti.
Kostnaður við hollvinasamning er tvíþættur. Annars vegar borgar hollvinur mánaðarlegan kostnað af rafmagni og hita á fasteigninni. Hins vegar greiðir hollvinur 30.000 kr. umsýslugjald þegar samningur er gerður.
Forsenda þess að hægt sé að gera hollvinasamning um húsnæði er að öruggt sé talið að vera í eigninni og á lóðinni í kring.
Hollvinum hefur til þessa staðið til boða að gera viðauka við hollvinasamning um gistingu.
Ákveðið hefur verið að yfirfara fyrirkomulagið og gera hlé á veitingu nýrra gistiheimilda þar til þeirri skoðun lýkur.
!
Þórkatla ítrekar að föst búseta er ekki heimil í fasteignum félagsins.

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur
Skilmálar og stefnur
Hafa samband
546-2100
2024 Fasteignafélagið Þórkatla
– Öll réttindi áskilin