Jun 20, 2025

Tæplega helmingur líkleg til snúa aftur

45% Grindvíkinga telja líklegt að þau snúi aftur í bæinn þegar eldsumbrotin eru yfirstaðin. Meðal svarenda 39 ára og yngri telja 58% líklegt að þau muni snúa aftur til Grindavíkur.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í könnun Þórkötlu meðal þeirra sem selt hafa félaginu eignir í bænum. Fyrrum íbúar Grindavíkur voru einnig spurðir hvernig aðlögun þeirra hefði gengið á nýjum stað og um reynslu þeirra af húsnæðisuppkaupum Þórkötlu í bænum.

Þegar spurt var hversu vel eða illa aðlögun fjölskyldunnar hefði gengið á nýjum stað, sögðu 49% að hún hefði gengið vel en 23% sögðu hana hafa gengið illa. Þá kom fram í könnuninni að aðeins 14% þátttakenda töldu gistibann, sem var í gildi í bænum lengi vel, vera sanngjarnt. Það rímar vel við upplifun starfsfólks Þórkötlu en nú eru þrjár vikur liðnar síðan gisting var leyfð í eignum félagsins í bænum og ríkir mikil ánægja með ákvörðunina. Frá því breytingin tók gildi hefur verið sótt um heimild til gistingar í um 70 eignum í bænum. 

Einnig var spurt um upplifun svarenda af þjónustu Þórkötlu, nú þegar nær öllum uppkaupum er lokið og sögðust 50% frekar eða mjög ánægðir með reynslu sína af Þórkötlu. Þeir sem sögðust mjög óánægðir voru 13% og 12% voru frekar óánægðir.  

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, segir dýrmætt fyrir félagið að fá upplýsingar um það beint frá Grindvíkingum hvað þeim hafi fundist ganga vel og hvað betur hefði mátt fara í þessu umfangsmikla verkefni. 

„Við erum afar þakklát Grindvíkingum fyrir þeirra endurgjöf. Það er mikilvægt fyrir okkur að geta litið til baka og lært af ferlinu. Fyrstu vikurnar voru auðvitað mjög krefjandi og óvissa mikil. Þar hefðum við viljað hafa staðið okkur betur í upplýsingagjöf til umsækjenda. En það var gott að sjá að eftir því sem leið á virðist hafa verið almennt meiri ánægja með ferlið. Þá var gagnlegt að fá innsýn inn í fjölda þeirra sem hafa hug á að snúa aftur í bæinn, enda er það markmið okkar að gera íbúum kleift að kaupa eignir sínar aftur þegar skilyrði leyfa“ segir Örn Viðar.

Með hliðsjón af áhuga Grindvíkinga á að snúa aftur í bæinn hefur Þórkatla mikinn áhuga á að hefja útleigu eigna til fyrrum eigenda með haustinu, ef aðstæður leyfa. Að mati Þórkötlu væru langtíma leigusamningar sem tækju mið af aðstæðum og takmarkaðri þjónustu í Grindavík mikilvægt næsta skref í uppbyggingu í bænum. Gildandi húsaleigulög, sem eðlilega taka ekki tillit til séraðstæðna í Grindavík, setja félaginu þó verulegar skorður í þeim efnum.

Hægt er að skoða niðurstöður úr könnun Þórkötlu með því að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.