Þórkatla fagnar uppfærðu áhættumati fyrir Grindavík

Fasteignafélagið Þórkatla fagnar niðurstöðum í uppfærðu áhættumati fyrir Grindavík. Uppfært áhættumat er mikilvæg forsenda fyrir búsetu og sölu eigna í bænum. 

body of water under sky

Þórkatla hefur nú um nokkurt skeið unnið að áætlun um endursölu eigna til Grindvíkinga og er sú áætlun langt komin. Félagið telur hins vegar að til þess að tryggja farsæla framkvæmd endurkaupaáætlunar sé nauðsynlegt að gerðar verði ákveðnar breytingar á lögum, enda ekki um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða. Félagið hefur að undanförnu átt í samtali við yfirvöld um útfærslu slíkra breytinga. Ekki verður greint frá áætlunum um endursölu fyrr en niðurstaða liggur fyrir í þeirri vinnu. 

Helstu þættir endurkaupaáætlunar Þórkötlu eru að tryggja forgang Grindvíkinga að fyrri eignum sínum ásamt því að tryggja fjármögnun kaupanna og skilarétt í tiltekinn tíma. Þá gerir áætlunin ráð fyrir að gefa þeim sem það kjósa gott ráðrúm til ákvörðunartöku. Fyrir liggur ríkur vilji hjá félaginu að styðja við þá Grindvíkinga sem hafa í hyggju að kaupa aðra eign en sína fyrri, en slík útfærsla hangir þó saman við áðurnefndar lagabreytingar. 

Fasteignafélag fyrir framtíð Grindavíkur

2024 Fasteignafélagið Þórkatla

– Öll réttindi áskilin