Heimild til gistingar
Sækja um heimild til gistingar.
Hér geta hollvinir Þórkötlu óskað eftir heimild til að gista í eignum sem þeir hafa gert samning um. Hægt er að gera samning um gistingu sem gildir til 31. ágúst 2026.
Umsýslugjald við gerð viðauka um gistingu við hollvinasamning er 95.000 kr. eingreiðsla sem greiðist við undirritun.
Forsenda þess að hægt sé að gera viðbót við hollvinasamninginn um gistingu er að öruggt sé talið að gista í eigninni og eignin ekki staðsett á fyrirfram skilgreindu svæði innan Grindavíkur þar sem hætta er talin mikil.
Athugið
Þórkatla vinnur nú að útfærslu á nýjum hollvinasamningi og gistiviðauka sem verður í boði fyrir fyrrum eigendur frá og með 1. september 2026.
Í nýjum samningi verða áfram skýr ákvæði um bann við fastri búsetu og verður heimild til gistingar í eignum félagsins afmörkuð með skýrari hætti.
!
Þórkatla ítrekar að þó gisting sé heimil með viðauka við hollvinasamning þá er föst búseta ekki leyfileg í eignum félagsins.